01.12.17 - 17:37
Magnús Már Einarsson
Kristinn Freyr í Val (Staðfest)

Kristinn Freyr Sigurðsson við undirskriftina í dag.

Mynd: Arnar Daði

Kristinn Freyr Sigurðsson við undirskriftina í dag.

Mynd: Arnar Daði
Kristinn Freyr Sigurðsson skrifaði nú síðdegis undir fjögurra ára samning við Val.
Kristinn losnaði undan samningi hjá GIF Sundsvall í Svíþjóð fyrr í dag.
Kristinn losnaði undan samningi hjá GIF Sundsvall í Svíþjóð fyrr í dag.
Hinn 25 ára gamli Kristinn lék með Val frá 2012 til 2016 en hann varð bikarmeistari með liðinu bæði 2015 og 2016. Árið 2016 var Kristinn valinn besti leikmaðurinn í Pepsi-deildinni en hann varð þá næstmarkahæstur.
Í kjölfarið fór Kristinn til GIF Sundsvall þar sem hann spilaði 27 leiki í sænsku úrvalsdeildinni í ár.
Kristinn hóf meistaraflokksferil sinn hjá Fjölni eftir að hafa leikið í yngri flokkunum í Grafarvogi og hjá Aftureldingu.
FH hafði einnig áhuga á að fá Kristin í sínar raðir en á endanum gekk hann til liðs við Val.
Komnir:
Kristinn Freyr Sigurðsson frá GIF Sundsvall
Ívar Örn Jónsson frá Víkingi R.
Ólafur Karl Finsen frá Stjörnunni
Farnir:
Haukur Ásberg Hilmarsson
Nicolas Bogild