01.12.17 - 14:00
Magnús Már Einarsson
Skarphéðinn í ÍA (Staðfest)

Skarphéðinn Magnússon.

Mynd: Sigurður Arnar Sigurðsson

Skarphéðinn Magnússon.

Mynd: Sigurður Arnar Sigurðsson
ÍA hefur fengið markvörðinn Skarphéðin Magnússon til liðs við sig frá Kára. Skarphéðinn veður einnig markmannsþjálfari meistaraflokks karla en hann tekur við þeirri stöðu af Guðmundi Hreiðarssyni.
Markvörðurinn reyndi Páll Gísli Jónsson lagði skóna á hilluna á dögunum en hins vegar gerði Árni Snær Ólafsson nýjan samning við félagið.

Hinn 28 ára gamli Skarphéðinn hefur þjálfað yngri flokka hjá ÍA undanfarin ár auk þess að sinna markmannsþjálfum og afreksæfingum.
Skarphéðinn hefur einnig varið mark Kára í 3. deildinni síðustu tvö ár og átti þar á meðal þátt í því að liðinu tókst að vinna sér inn sæti í 2. deildinni næsta sumar, en Káramenn fengu aðeins á sig 16 mörk í 18 leikjum.
Hann hefur áður leikið með meistaraflokki Aftureldingar og Dalvíkur/Reynis.
„Við erum ánægð með að fá Skarphéðinn inn í leikmannahópinn og trúum því að hann verði góð viðbót við hann, eins og hann hefur verið í öðrum verkefnum sem hann hefur tekið að sér fyrir félagið,\" segir á heimasíðu ÍA.