01.12.18 - 12:00
Ívan Guðjón Baldursson
David Villa þriðji heimsmeistarinn í Vissel Kobe (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Japanska félagið Vissel Kobe er búið að ganga frá samningi við spænska sóknarmanninn David Villa.
Villa gengur þar til liðs við fyrrverandi liðsfélaga sinn hjá Barcelona og spænska landsliðinu, Andres Iniesta. Villa og Iniesta urðu heimsmeistarar saman með spænska landsliðinu 2010 en þeir eru ekki einu heimsmeistararnir í leikmannahópi Kobe.
Lukas Podolski er nefnilega á mála hjá félaginu og verður áhugavert að fylgjast með þríeykinu á næsta ári. Japanska tímabilinu lauk í dag og endaði Vissel Kobe um miðja deild með 45 stig úr 34 leikjum. Þó aðeins fjórum stigum frá fallsæti.
Villa er 36 ára gamall og gerði 80 mörk í 124 leikjum fyrir New York City á fjórum árum hjá félaginu.