Fotbolti.net
01.12.18 - 15:49
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalska deildin

Zamparini búinn að selja Palermo (Staðfest)

Zamparini búinn að selja Palermo (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Hinn sískrautlegi Maurizio Zamparini er búinn að selja Palermo fyrir hvorki meira né minna en 10 evrur, en félagið er þessa stundina með þriggja stiga forystu á toppi ítölsku B-deildarinnar.
Zamparini, sem er 77 ára gamall, keypti Palermo árið 2002 og ákvað að selja það í fyrra þegar hann hætti störfum sem forseti félagsins.

Undir leiðsögn Zamparini náði Palermo miklum hæðum og komst í Evrópukeppni en árangur liðsins var sveiflukenndur og féll félagið tvisvar sinnum niður í B-deild.

Zamparini er frægastur fyrir að vera duglegur að skipta um þjálfara, en hann skipti um 40 þjálfara á 16 árum.

Palermo skuldar 22 milljónir evra og munu nýir eigendur greiða þá skuld upp á næstu árum. Zamparini segir nýja eigendur félagsins vera frá London.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.