Fotbolti.net
01.12.19 - 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Man City tapað 13 stigum - Töpuðu 16 á öllu síðasta tímabili

Pep Guardiola, stjóri Man City.

Pep Guardiola, stjóri Man City.

Canon

Mynd: Getty Images

Manchester City, Englandsmeistarar síðustu tveggja ára, eru núna 11 stigum frá toppliði Liverpool þegar 14 leikir hafa verið spilaðir.
Lærisveinar Pep Guardiola hafa ekki byrjað þetta tímabil nægilega vel og er liðið bara búið að safna 29 stigum í 14 leikjum.

Þetta myndi þykja mikið hjá flestum félögum, en ekki hjá Manchester City.

Man City setti stigamet í ensku úrvalsdeildinni 2017/18 og náði í 100 stig og í fyrra vann liðið deildina eftir að hafa náð í 98 stig. City tapaði aðeins 14 stigum 2017/18 og 16 stigum á síðasta tímabili.

Í fyrstu 14 leikjum þessa tímabils hafa lærisveinar Pep Guardiola tapað 13 stigum. City er því aðeins einu tapi frá því að tapa jafnmörgum stigum á þessu tímabili og á öllu síðasta tímabili.

Man City gerði jafntefli gegn Newcastle í gær, en næsti leikur liðsins er við Burnley á útivelli á þriðjudaginn.

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Man City9+1021
2Arsenal8+821
3Brighton9+1719
4Chelsea9+416
5Liverpool8+315
6Brentford9+614
7Ipswich Town9-313
8Bournemouth9012
9Leeds9+211
10Newcastle8-211
11Aston Villa8-311
12Hull City9010
13Everton8-110
14Tottenham8-29
15Coventry9-69
16Fulham8-28
17Man Utd9-57
18Crystal Palace8-107
19Nott. Forest9-56
20Sunderland9-115
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.