28.11.26 - 10:31
Brynjar Ingi Erluson
Liverpool vongott um að landa Camara - Paz til Man Utd?

Lamine Camara til Liverpool?

Mynd: EPA

Nico Paz er orðaður við Man Utd

Mynd: EPA

Lamine Camara til Liverpool?

Mynd: EPA

Þá er komið að Powerade-slúðurpakka dagsins á þessum ágæta laugardegi.
Manchester United er enn talið meðal líklegustu félaganna til að krækja í Nico Paz (22) frá Como á Ítalíu, en hann hefur sjálfur sagt að hann vilji ekki snúa aftur til Real Madrid. Það gæti þó skipt miklu máli fyrir ákvörðun hans hvort United tryggir sér sæti í Meistaradeildinni. (Athletic)
Man Utd gæti hins vegar fengið harða samkeppni frá Arsenal, en Mikel Arteta er mjög áhugasamur um að fá Paz til liðsins. (ESPN)
Liverpool er vongott um að ná í Lamine Camara (22) frá Mónakó í janúar. Chelsea er hins vegar talið úr leik í baráttunni eftir að félaginu mistókst að ganga frá kaupum á honum í sumar. (GiveMeSport)
Everton fylgist grannt með Paul Mendy (19), senegölskum framherja Cagliari á Ítalíu, en Inter hefur einnig sýnt táningnum áhuga. (TeamTalk)
Liverpool, Brighton, Bayern München og Barcelona gætu öll blandað sér í baráttuna um Wael Mohya (17), leikmann Borussia Mönchengladbach, í sumar. (TalkSport)
Arsenal er talið standa best að vígi í baráttunni um Carlos Forbs (22), leikmann Club Brugge og portúgalska landsliðsins, en félagið þarf líklega að bíða þar til tímabilinu lýkur með að fá hann til sín. (Football Insider)
Chelsea hefur áhuga á Simon Escobar (17), ungum varnarmanni Velez í Argentínu, en Brighton ætlar einnig að blanda sér í baráttuna um leikmanninn. (TeamTalk)
Brighton íhugar að rifta lánssamningi enska miðjumannsins Harry Howell (18) hjá Leicester City, en félagið er ósátt við hversu lítið hann hefur fengið að spila hjá C-deildarliðinu. (Football Insider)