Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 01. desember 2019 16:35
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Milos ekki áfram með Mjallby
Milos verður ekki áfram með Mjallby.
Milos verður ekki áfram með Mjallby.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Milos Milojevic mun ekki vera áfram hjá Mjallby í Svíþjóð þar sem hann hefur starfað sem þjálfari síðastliðin tvö ár með góðum árangri.

Milos þjálfaði bæði Víking R. og Breiðablik hér á landi áður en hann hélt til Svíþjóðar.

Ástæðan fyrir því að Milos verður ekki áfram hjá Mjallby er sú að ekki náðist samkomulag milli félagsins og hans um nýjan samning.

Milos hefur gert frábæra hluti með Mjallby en hann stýrði þeim upp í úrvalsdeildina í haust og því eru þetta frekar óvænt tíðindi.

Hann sendi út tilkynningu á Twitter nú fyrir stundu þar sem hann þakkar fyrir sig.


Athugasemdir
banner
banner
banner