 
                                                                                                            
                        
                                    
                                                    
                Japan vann E-riðil með mögnuðum sigri á Spáni. Spánn var marki yfir í hálfleik en missti forystuna á þriggja mínútna kafla í upphafi síðari hálfleik.
Spánn endar í öðru sæti og mætir Marokkó í 16 liða úrslitum á meðan Japan fær Króatíu.
Einhverjir eru með samsæriskenningar um það að Spánn hafi kosið að tapa leiknum í dag til að mæta lakari andstæðingum á leið sinni í úrslitaleikinn. Spánverjar spiluðu boltanum mikið sín á milli en ekki var mikið bit í sóknaraðgerðunum.
Helga Margrét Höskuldsdóttir var með Arnar Gunnlaugsson, Heimi Hallgrímsson og Gunnar Birgison í settinu í HM stofunni á Rúv eftir leikinn.
Gunnar fór yfir skemmtilega myndlíkingu á mögulegum hugsunarhætti Spánverja.
„Segjum að við fjögur værum að fara á Þjóðhátíð, við gætum auðvitað tekið árabátinn og kæmumst yfir á endanum myndi ég halda. Við gætum líka bara tekið Herjólf. Þetta er bara nákvæmlega það; Þú hlítur að vilja fá Marokkó og Portúgal frekar en Króatíu og Brasilíu," sagði Gunnar.

 
        
 
         
     
                    
        
         
                 
                        
        
         
                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                            
                        
        
         
                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                
                        
        
         
                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                        
                        
        
        

