02.01.13 - 06:00
Magnús Már Einarsson
Augsburg fær Ji á láni frá Sunderland (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Þýska félagið Augsburg hefur fengið framherjann Ji Dong-Won á láni frá Sunderland út tímabilið.
Ji kom til Sunderland frá Chunnam Dragons árið 2011 en hefur ekki náð að festa sig í sessi í byrjunarliðinu.

Ji komst reyndar í sviðsljósið á síðasta tímabili þegar hann skoraði sigurmarkið í leik gegn Manchester City.
Eftir það hefur lítið farið fyrir Ji en þessi 21 árs gamli leikmaður hefur ekkert komið við sögu í vetur.
Hann mun nú reyna að hjálpa Augsburg sem er í basli í næstneðsta sæti í þýsku Bundesligunni en liðið hefur einungis skorað tólf mörk á tímabilinu.

Heimild: Goal