Fotbolti.net
02.01.13 - 20:00
Magnús Már Einarsson

Blackburn kaupir Joshua King frá Man Utd (Staðfest)

Blackburn kaupir Joshua King frá Man Utd (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Blackburn hefur keypt Joshua King frá Manchester United en hann hefur verið á láni hjá félaginu að undanförnu.

King hefur skrifað undir samning við Blackburn sem gildir til ársins 2015 en möguleiki er á að framlengja þann samning um eitt ár.
,,Ég hef notið tímans hér, við erum með frábæran hóp og ég hef aðlagast vel,\" sagði King.

King, sem er tvítugur sóknarmaður, hefur skorað tvö mörk í átta leikjum með Blackburn síðan hann kom fyrst til félagsins í nóvember.

King er Norðmaður en hann á fjóra landsleiki að baki.

Heimild: Heimasíða Blackburn

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.