02.01.13 - 08:21
Daníel Freyr Jónsson
Man Utd lánar Angelo Henriquez til Wigan (Staðfest)

Angelo Henriquez.

Mynd: Twitter

Angelo Henriquez.

Mynd: Twitter
Wigan hefur fengið framherjann Angelo Henriquez að láni frá Manchester United og mun hann leika með félaginu út tímabilið.
Þessi 18 ára gamli Chilebúi gekk í raðir United í september síðastliðnum frá Universidad de Chile og var hann því ekki löglegur með liðinu á fyrri helming tímabilsins.
Hann hefur því verið lánaður nú til Wigan þar sem hann mun eflaust fá fleiri tækifæri, enda framherjasveit félagsins ekki jafn sterk og sú hjá United.
Henriquez þykir gríðarlegt efni og hefur þrátt fyrir ungan aldur þegar leikið sinn fyrsta landsleik fyrir Chile.
Hann fetar í fótspor Tom Cleverley, samherja síns hjá United, sem eyddi tímabilinu 2010-11 á láni hjá Wigan og þótti sú dvöl mjög vel heppnuð.