Fotbolti.net
02.01.17 - 12:22
Magnús Már Einarsson

Anna Björk til LB07 (Staðfest)

Anna Björk til LB07 (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
Anna Björk Kristjánsdóttir, landsliðskona, hefur gert samning við Limhamn Bunkeflo 07 í sænsku úrvalsdeildinni.

LB07 er nýliði í sænsku úrvalsdeildinni en liðið vann B-deildina með yfirburðum í fyrra.
Anna Björk fór síðastliðinn vetur frá Stjörnunni til Örebro þar sem hún spilaði 21 leik í sænsku úrvalsdeildinni á síðasta tímabili en liðið endaði í áttunda sæti deildarinnar af tólf liðum.

Hin 27 ára gamla Anna hefur nú ákveðið að yfirgefa Örebro og leika með LB07 á komandi tímabili.

Anna hefur átt fast sæti í hjarta varnarinnar í íslenska landsliðinu en reikna má með að hún verði í eldlínunni á EM í Hollandi í sumar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.