Fotbolti.net
02.01.17 - 23:30
Jóhann Ingi Hafþórsson

Joey Barton kominn til Burnley (Staðfest)

Joey Barton er kominn til Burnley á nýjan leik.

Joey Barton er kominn til Burnley á nýjan leik.

Canon

Mynd: Getty Images

Burnley hefur staðfest að Joey Barton er kominn til félagsins á nýjan leik og skrifað undir samning sem gildir til loka leiktíðarinnar.
Miðjumaðurinn var hjá Rangers í Skotlandi en yfirgaf félagið eftir rifrildi á æfingu og veðmálabrota.

Hann spilaði aðeins fimm leiki með Rangers, áður en hann var látinn fara.

Barton spilaði stórt hlutverk fyrir Burnley í Championship deildinni og hjálpaði þeim að tryggja sætið í ensku úrvalsdeildinni á leiktíðinni.

Staðfest var að Barton myndi fara til Burnley fyrir nokkru síðan en eftir að í ljós kom að hann hafi ólöglega veðjað á yfir 1000 leiki voru efasemdir um hvort það yrði staðið við samninga en nú er hann kominn til félagsins.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.