02.01.17 - 09:03
Magnús Már Einarsson
Martin Lund í Breiðablik (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Breiðablik hefur samið við danska kantmanninn Martin Lund Pedersen en hann kemur til félagsins frá Fjölni.
Martin Lund gerði eins árs samning við Breiðablik.
Hinn 25 ára gamli Martin Lund skoraði níu mörk með Fjölni í Pepsi-deildinni í fyrra og varð fjórði markahæsti leikmaður deildarinnar.

Nokkur félög sýndu Martin Lund áhuga eftir síðasta tímabil en hann ákvað að semja við Blika.
„Það var ekki auðvelt að kveðja Fjölnisliðið enda átti ég góðan tíma í Grafarvoginum síðasta sumar. Mér stóðu margir möguleikar til boða eftir tímabilið en að lokum ákvað ég að ganga til liðs við Breiðablik,\" sagði Martin Lund við Blikar.is.
„Mér líst vel á alla umgjörð hjá félaginu. Ég tel að með þeim þjálfurum og leikmönnum sem þar eru til staðar félagið hafi félagið frábæran efnivið til að ná mjög langt á næsta tímabili. Ég hlakka til að taka slaginn með Kópavogsliðinu í Pepsi-deildinni næsta sumar.\"