Fotbolti.net
02.01.17 - 13:38
Ívan Guðjón Baldursson

Ryan Babel kominn til Besiktas (Staðfest)

Babel gerði 4 mörk í 11 leikjum fyrir Deportivo í fyrra.

Babel gerði 4 mörk í 11 leikjum fyrir Deportivo í fyrra.

Canon

Mynd: Getty Images

Ryan Babel er búinn að skrifa undir samning við tyrkneska stórliðið Besiktas, þar sem hann gengur til liðs við leikmenn á borð við Ricardo Quaresma, Gökhan Inler og Adriano.

Babel gerði garðinn frægan aðeins átján ára gamall þegar hann braust inn í byrjunarlið Ajax.
Liverpool keypti hann þremur árum síðar en leið kantmannsins hefur aðeins legið niður á við síðan þá og hefur Babel til að mynda ekki leikið fyrir hollenska landsliðið síðan hann gekk til liðs við Hoffenheim árið 2011.

Undanfarin ár hefur Babel spilað fyrir Kasimpasa í Tyrklandi, Al-Ain í Abu Dhabi og Deportivo La Coruna á Spáni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.