Fotbolti.net
02.01.19 - 23:45
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

„Fabregas var mjög augljóslega að kveðja"

Fabregas er sagður á leið til Mónakó.

Fabregas er sagður á leið til Mónakó.

Canon

Mynd: Getty Images

Miðjumaðurinn Cesc Fabregas kom inn á sem varamaður á 68. mínútu þegar Chelsea gerði markalaust jafntefli við Southampton í ensku úrvalsdeildinni í kvöld.
Fabregas var að leika sinn 500. leik í enskum fótbolta en þetta var mögulega hans síðasti.

Matt Law, blaðamaður sem fjallar um Chelsea fyrir Telegraph, sagði frá því á Twitter eftir leikinn að Fabregas væri augljóslega að kveðja stuðningsmenn.

„Fabregas augljóslega að kveðja stuðningsmenn eftir lokaflautið," sagði Law en hann bætti við að hann gæti spilað með Chelsea gegn Nottingham Forest í FA-bikarnum um helgina.

Fabregas hefur verið sterklega orðaður við Mónakó í Frakklandi. Sagan segir að hann semji þar í næstu viku, en stjóri Mónakó er Thierry Henry, fyrrum liðsfélagi Fabregas hjá Arsenal.


Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.