02.01.19 - 09:00
Arnar Helgi Magnússon
Lið ársins í ensku úrvalsdeildinni að mati lesenda BBC

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Breski fjölmiðlarisinn BBC var með kosningu þar sem að lesendur síðunnar voru beðnir um að velja besta lið ársins 2018 í ensku úrvalsdeildinni.
David De Gea stendur í markinu með 35.5% atkvæða en Alisson komst næst honum með 30%. Þar á eftir kom Jordan Pickford og Hugo LLoris.
Liverpool á þrjá fulltrúa í varnarlínunni. Þá Trent Alexander-Arnold, Virgil Van Dijk og Andrew Robertson. Virgil Van Dijk var valinn í liðið af 85% lesenda.
Aymeric Laporte er einnig í varnarlínunni en menn sem komust ekki í liðið en fengu þó fullt af atkvæðum voru meðal annars Marcos Alonso og Toby Alderweireld.
Chelsea og Manchester City skipta miðjunni á milli sín en frá Chelsea eru þar Eden Hazard og N'Golo Kante. Kevin De Bruyne og David Silva eru frá City en Christian Eriksen og Fernandinho voru næstu menn inn.
Mo Salah og Harry Kane leiða síðan framlínuna en þeir áttu báðir stórkostlegt ár. Pierre-Emerick Aubameyang og Sergio Aguero fengu einnig fullt af atkvæðum.
Liðið og liðsuppstillinguna má sjá hér að neðan.

Mynd: BBC