Fotbolti.net
02.01.19 - 22:46
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Rashford minnir Solskjær á gamlan liðsfélaga

Ole Gunnar Solskjær.

Ole Gunnar Solskjær.

Canon

Mynd: Getty Images

<i>„Þú verður að vera ánægður með fjóra sigra í fjórum leikjum,"</I> sagði Ole Gunnar Solskjær, stjóri Manchester United, eftir 2-0 sigur á Newcastle í kvöld. <i>„Við höfum líka ekki fengið á okkur mark úr opnu spili, það er jákvætt."</I>
„Við vorum hægir í fyrri hálfleiknum en stjórnuðum leiknum nokkuð vel. Við einbeittum okkur og sýndum mikla fagmennsku."

Solskjær sagði í viðtali við Sky Sports að það hefði verið æfingaleikjabragur yfir fyrri hálfleiknum. „Þetta var á kölfum eilítið eins og æfinga- eða góðgerðarleikur. Við vorum að senda of mikið til hliðar og til baka."

„Á fimm mínútna kafla gerðum við breytingar en svo urðum við rólegir aftur. Newcastle er frábært félag, með frábæra stuðningsmenn. Þú býst við því að þeir sæki en Victor Lindelöf og Phil Jones voru frábærir."

Romelu Lukaku var aðeins búinn að vera inn á í 38 sekúndur þegar hann skoraði fyrsta mark leiksins. Innkoma Lukaku minnti á Solskjær á sínum tíma, en Solskjær var duglegur að breyta leikjum sem varamaður.

„Þetta var góð fyrsta snerting hjá varamanninum! Þegar þú sérð Stóra Rom hlaupa í áttina að þér, sem markvörður þá viltu kannski taka hendurnar í burtu."

Marcus Rashford var maður leiksins. Fyrra markið kom eftir aukaspyrnu frá honum og hann skoraði seinna markið. Rashford hefur verið að æfa aukaspyrnurnar og Solskjær segir að hann minni á fyrrum liðsfélaga sinn.

„Marcus er með skot eins og Cristiano, það er mikil sveifla á skotinu. Hann skoraði flott mark."

„Hann er bara 21 árs, það má ekki gleymast," sagði Solskjær.
Marcus Rashford.

Marcus Rashford.

Canon

Mynd: Getty Images

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.