02.02.17 - 11:07
Magnús Már Einarsson
Frank Lampard leggur skóna á hilluna (Staðfest)

Skórnir upp á hillu.

Mynd: Getty Images

Skórnir upp á hillu.

Mynd: Getty Images
Frank Lampard, markahæsti leikmaður í sögu Chelsea, hefur lagt skóna á hilluna en hann greindi frá þessu á Instagram síðu sinni í dag.
Hinn 38 ára gamli Lampard hefur verið án félags síðan hann yfirgaf New York City undir lok síðasta árs. Hann hefur nú ákveðið að hætta í fótbolta eftir 21 ár í atvinnumennsku.

„Eftir ótrúlegt 21 árs hef ég ákveðið að núna sé rétti tíminn til að ljúka ferli mínum sem atvinnumaður í fótbolta. Ég hef fengið nokkur spennandi tilboð til að spila heima og utan Englands en ég tel að núna þegar ég er 38 ára sé kominn tími á að hefja næsta kafla í lífi mínu,\" sagði Lampard.
Lampard er byrjaður að afla sér þjálfararéttinda hjá enska knattspyrnusambandinu og ætlar að starfa á þeim vettvangi í framtíðinni.
Samtals skoraði Lampard 211 mörk í 648 leikjum með Chelsea á þrettán árum sínm hjá félaginu. Hann varð þrisvar enskur meistari með liðinu, fjórum sinnum enskur bikarmeistari auk þess sem hann vann Meistaradeildina með Chelsea árið 2012.
Lampard ólst upp hjá West Ham og hóf meistaraflokksferil sinn þar. Árið 2001 fór hann til Chelsea þar sem hann lék til ársins 2014 þegar hann gerði tveggja ára samning við New York City.
Lampard lék með Manchester City á láni í hálft ár áður en hann fór síðan til Bandaríkjanna.
Á ferli sínum spilaði Lampard 106 leiki með enska landsliðinu og skoraði 29 mörk en fyrsti landsleikur hans var árið 1999.