02.02.17 - 06:00
Kristófer Kristjánsson
Íris Ósk Valmundsdóttir til Fjölnis (Staðfest)

Íris Ósk Valmundsdóttir

Mynd: Fjölnir

Íris Ósk Valmundsdóttir

Mynd: Fjölnir
Íris Ósk Valmundsdóttir er gengin til liðs við Fjölni. Þetta var staðfest í gær þegar hún skrifaði undir 2 ára samning við félagið.
Íris, sem er uppalinn Fjölnismaður, leikur sem hafsent og á að baki yfir 150 KSÍ leiki og hefur skorað í þeim 16 mörk.
Hún lék áður með KR og Stjörnunni en hún var t.a.m. fyrirliði KR síðasta sumar í Pepsi-deildinni.
„Þessi félagsskipti sýna þann mikla metnað og kraft, svo ekki verður um villst, sem býr innan félagsins um þessar mundir og er stór yfirlýsing út á við til annarra liða - enda annar mjög öflugur liðsstyrkur á skömmum tíma. Við Fjölnismenn hlökkum til að sjá Írisi á vellinum í sumar og bjóðum hana velkomna heim í Grafarvoginn aftur,\" segir í fréttatilkynningu frá Fjölni í gær.
Berglind Magnúsdóttir skrifaði undir tveggja ára samning við Fjölni fyrr í vikunni en hún lék síðast með Þór/KA en hefur búið í Danmörku undanfarin ár.
Fjölnir leikur í nýrri 2. deild næsta sumar.