Fotbolti.net
02.03.19 - 12:16
Arnar Helgi Magnússon

Piers Morgan við Emery: Hvað ertu að gera?

Piers Morgan við Emery: Hvað ertu að gera?
Canon

Mynd: Getty Images

Pierre-Emerick Aubameyang er á varamannabekk Arsenal sem að mætir Tottenham í ensku úrvalsdeildinni núna klukkan 12:30.

Sjáðu byrjunarliðin í leiknum með því að smella hér.
Sjónvarpsmaðurinn Piers Morgan er mikill stuðningsmaður Arsenal en hann er brjálaður út í Unai Emery, stjóra Arsenal, fyrir þá ákvörðun að byrja með Aubameyang á bekknum.

„Þú verður að byrja með Aubameyang inná í Norður Lundúnarslag. Hann er okkar aðalmaður, ekki einhver helvítis varamaður. Ég kann vel við þig Unai, en hvað ertu að gera?" segir Morgan á Twitter nú rétt fyrir leikinn.



Mezut Özil og Lucas Torreira eru einnig á varamannabekk Arsenal í leiknum en nokkrir stuðningsmenn Arsenal eru ekkert sérstaklega ánægðir með liðsuppstillinguna í dag ef að marka má orð þeirra á samfélagsmiðlum.

Hér að neðan má sjá brot af umræðunni sem að hefur myndast um byrjunarliðin.







Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.