02.03.21 - 08:30
Brynjar Ingi Erluson
Albert í liði vikunnar eftir góða frammistöðu gegn Feyenoord

Albert Guðmundsson er að gera góða hluti með AZ

Mynd: Getty Images

Íslenski landsliðsmaðurinn Albert Guðmundsson er í liði vikunnar hjá hollenska blaðinu AD.
Albert var frábær í 4-2 sigri AZ Alkmaar gegn Feyenoord um helgina en frammistaða hans vakti verðskuldaða athygli.
Hann er í liði vikunnar hjá hollenska blaðinu AD ásamt tveimur öðrum leikmönnum AZ, þeim Myron Boadu og Owen Wijndal.
Albert hefur byrjað árið vel með AZ en hann var einnig valinn í lið vikunnar af Voetbal um miðjan febrúar eftir góða frammistöðu gegn Heerenveen í 3-1 sigri þar sem hann gerði þriðja mark AZ.
Hann hefur skorað 8 mörk og lagt upp 3 í 25 leikjum í öllum keppnum með liðinu á þessu tímabili.