Jackson Tchatchoua, leikmaður Úlfanna, hefur verið hraðasti leikmaður ensku úrvalsdeildarinnar það sem af er tímabils. Hann á tvo hröðustu spretti vetrarins og er sá hraðari jafnframt sá þriðji hraðasti sem mælst hefur í sögu deildarinnar.
Destiny Udogie er með þriðja hraðasta sprettinn á tímabilinu. Þar á eftir koma Anthony Elanga og Bryan Mbuemo.
Enska úrvalsdeildin birti nýverið lista yfir tíu hröðustu spretti tímabilsins og má sjá hann hér fyrir neðan.
Destiny Udogie er með þriðja hraðasta sprettinn á tímabilinu. Þar á eftir koma Anthony Elanga og Bryan Mbuemo.
Enska úrvalsdeildin birti nýverið lista yfir tíu hröðustu spretti tímabilsins og má sjá hann hér fyrir neðan.
Jackson Tchatchoua (Wolves) - 37.30 km/klst, gegn Everton 30. ágúst. EVE 30/08/25
Jackson Tchatchoua (Wolves) - 36.97 km/klst, gegn Crystal Palace 22. febrúar.
Destiny Udogie (Tottenham) - 36.42 km/klst, gegn Brighton 20. september.
Anthony Elanga (Newcastle) - 36.35 km/klst, gegn Chelsea 20. desember.
Bryan Mbeumo (Manchester United) - 36.34 km/klst, gegn Fulham 24. ágúst.
Pedro Neto (Chelsea) - 36.32 km/klst, gegn Brighton 27. september.
Anthony Gordon (Newcastle) - 36.26 km/klst, gegn Brighton 18. október.
Jeremie Frimpong (Liverpool) - 36.18 km/klst, gegn Arsenal 8. janúar.
Daniel James (Leeds) - 36.13 km/klst, gegn Newcastle 30. ágúst.
Yankuba Minteh (Brighton) - 36.11 km/klst, gegn Manchester City 31. ágúst.
Þess má geta að Luke Rae, leikmaður KR, hefur mælst á 36.8 km/klst hraða í leik með KR og væri sá sprettur sá þriðji hraðasti í ensku úrvalsdeildinni á tímabilinu.
Athugasemdir

