02.04.19 - 18:58
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Ítalía: Lasagna bjargaði stigi gegn AC Milan

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
<b>Milan 1 - 1 Udinese</b>
1-0 Krzysztof Piatek ('44 )
1-1 Kevin Lasagna ('65 )
1-0 Krzysztof Piatek ('44 )
1-1 Kevin Lasagna ('65 )
AC Milan lenti í erfiðri stöðu þegar liðið mætti Udinese í fyrri leik dagsins í ítölsku úrvalsdeildinni.
Milan missti markvörðinn Gianluigi Donnarumma og miðjumanninn Lucas Paqueta af velli með meiðsli í fyrri hálfleik. Þrátt fyrir meiðslin komst Milan 1-0 yfir á 44. mínútu og var það pólski framherjinn Krzysztof Piatek sem skoraði.
Eftir 20 mínútur í seinni hálfleiknum jafnaði Kevin Lasagna metin. Þar við sat og lokatölur því 1-1.
Emil Hallfreðsson er á mála hjá Udinese en var ekki með í dag. Hann er að stíga upp úr meiðslum.
Milan er í fjórða sæti, fjórum stigum á undan Lazio, sem á leik til góða. Udinese er í 16. sæti, fjórum stigum frá fallsæti.