02.04.19 - 22:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Ivan Bubalo í Hött/Hugin (Staðfest)

Bubalo í leik með Fram.

Mynd: Fótbolti.net - Ómar Vilhelmsson

Bubalo í leik með Fram.

Mynd: Fótbolti.net - Ómar Vilhelmsson
Höttur/Huginn hefur samið við króatíska sóknarmanninn Ivan Bubalo. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu í kvöld.
Bubalo er 29 ára og þekkir vel til Íslands. Hann spilaði tvö sumur með Fram í Inkasso-deildinni árin 2016 og 2017 þar sem hann skoraði 19 mörk í 40 leikjum.
Núna síðast lék hann í 4.deild á Ítalíu. Hann mætti til landsins í dag og kom austur í kvöld.
Í tilkynningu Hattar/Hugins kemur fram að fleiri íslensk lið hafi reynt að fá Bubalo, þar á meðal félög úr Inkasso-deildinni og 2. deild.
„Við erum mjög ánægð með að hafa krækt í hann en eftir að nafn hans kom á borð stjórnar og þjálfara þá var aldrei spurning um að athuga hvort við ættum möguleika að ná honum austur og viti menn," segir í tilkynningunni.
Höttur/Huginn sendir sameiginlegt lið til leiks í 3. deildinni í sumar.