Ítalska goðsögnin Gianluigi Buffon er hættur störfum hjá ítalska landsliðinu eftir að Ítalíu mistökst að vinna sér sæti á HM í þriðja sinn í röð.
Hann tilkynnti þessa ákvörðun stuttu eftir að Gabriele Gravina, forseti ítalska fótboltasambandsins, hætti störfum.
Hann tilkynnti þessa ákvörðun stuttu eftir að Gabriele Gravina, forseti ítalska fótboltasambandsins, hætti störfum.
Ítalía mætti Bosníu og Hersegóvínu í úrslitaleik um sæti á HM en liðið tapaði eftir vítaspyrnukeppni.
Háværar sögusagnir eru um að Gennaro Gattuso, landsliðsþjálfari Ítalíu, muni ekki halda áfram með liðið.
Buffon er 48 ára fyrrum markvörður en hann spilaði 176 landsleiki á sínum tíma. Hann var í landsliðinu þegar Ítalía varð heimsmeistari árið 2006.




