Það vakti athygli í síðustu viku þegar Aldís Ylfa Heimisdóttir sagði upp hjá KSÍ. Skagamærin er nú mætt á heimaslóðir, til ÍA.
Hjá KSÍ sá hún um hæfileikamótun og U15 landslið kvenna. Hún hafði áður verið landsliðsþjálfari U17 og U16.
Hjá ÍA mun hún sinna þjálfun yngri flokka og verður samhliða því í verkefnastjórnun á skrifstofu félagisns.
Hjá KSÍ sá hún um hæfileikamótun og U15 landslið kvenna. Hún hafði áður verið landsliðsþjálfari U17 og U16.
Hjá ÍA mun hún sinna þjálfun yngri flokka og verður samhliða því í verkefnastjórnun á skrifstofu félagisns.
„Með ráðningunni styrkir félagið enn frekar umgjörð sína og metnaðarfulla uppbyggingu, innan sem utan vallar," segir í tilkynningu ÍA.
„Við erum afar ánægð með að fá Aldísi Ylfu til starfa. Hún þekkir félagið vel og hefur sterka tengingu við það, sem skiptir miklu máli. Ráðning hennar er mikilvægt skref í áframhaldandi uppbyggingu félagsins og mun styrkja bæði yngri flokka starfið og daglega starfsemi félagsins í heild,“ segir Ingimar Elí Hlynsson framkvæmdastjóri KFÍA
Tilkynning ÍA
Aldís Ylfa ráðin til ÍA
Knattspyrnufélag ÍA hefur ráðið Aldísi Ylfu Heimisdóttur til starfa hjá félaginu. Hún kemur til ÍA frá Knattspyrnusambandi Íslands þar sem hún hefur gegnt mikilvægu hlutverki við þjálfun yngri landsliða kvenna, auk þess að hafa haft yfirumsjón með hæfileikamótun sambandsins.
Hjá ÍA mun Aldís Ylfa sinna þjálfun yngri flokka félagsins samhliða verkefnastjórnun á skrifstofu þess. Með ráðningunni styrkir félagið enn frekar umgjörð sína og metnaðarfulla uppbyggingu, innan sem utan vallar.
Aldís Ylfa er með KSÍ A þjálfaragráðu og meistaragráðu í verkefnastjórnun. Hún býr yfir víðtækri reynslu af þjálfun og þróun ungra leikmanna og kemur með dýrmæta þekkingu inn í starfsemi ÍA.
„Við erum afar ánægð með að fá Aldísi Ylfu til starfa. Hún þekkir félagið vel og hefur sterka tengingu við það, sem skiptir miklu máli. Ráðning hennar er mikilvægt skref í áframhaldandi uppbyggingu félagsins og mun styrkja bæði yngri flokka starfið og daglega starfsemi félagsins í heild,“ segir Ingimar Elí Hlynsson framkvæmdastjóri KFÍA.

