Fyrsta skotmark De Zerbi - Man Utd fylgist með miðverði Benfica - Kofane til Arsenal - Hvað verður um Kounde og Dumfries?
   fim 02. apríl 2026 09:30
Brynjar Ingi Erluson
Gattuso verður ekki áfram með ítalska landsliðið
Mynd: EPA
Sky Sports á Ítalíu segir að búið sé að taka ákvörðun um að Gennaro Ivan Gattuso og Gianluigi Buffon hætti með ítalska landsliðið eftir að hafa mistekist að koma liðinu á HM.

Ítalia tapaði fyrir Bosníu og Hersegóvínu eftir vítakeppni í umspili um sæti á HM og er það því ljóst að Ítalía fer ekki í lokakeppni HM í þriðja sinn í röð.

Gabriele Gravina, forseti ítalska fótboltasambandsins, sagði eftir leikinn að Gattuso og Buffon yrðu ekki látnir fara, en Sky segir það ekki rétt.

Búið sé að taka ákvörðun um að þeir hætti með ítalska landsliðið og er leit að arftaka þeirra hafin.

Antonio Conte, þjálfari Napoli, og Massimo Allegri, þjálfari Milan, eru líklegastir til að taka við keflinu. Conte stýrði landsliðinu frá 2014 til 2016 og fór með liðið í 8-liða úrslit Evrópumótsins áður en hann hætti.


Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey

Slapp
banner
banner