Belginn Senne Lammens hefur átt gott tímabil með Manchester United, hans fyrsta á Englandi, og fer markvarðanjósnari félagsins hæstánægður með hann.
Lammens var keyptur á 18,1 milljónir punda frá Antwerp síðasta sumar.
„Hann getur verið allt og allir," sagði Tony Coton, sem er aðalmarkvarðanjósnari Manchester United, þegar hann var spurður hvort Lammens minnti hann á einhvern.

„Hann leggur hart að sér, er andlega sterkur og er með verkfærin sem þarf til."
„Frá markvarðarsjónarhorni, þá vil ég ekki bera hann saman við neinn. Hann er Senne Lammens, er hann sjálfur, og ef hann heldur áfram að leggja eins hart að sér, bætir sig í smáatriðum, þá getur hann orðið einn sá besti í heiminum. Ég er viss um það."
„Hann þarf enn að bæta sig, það eru nokkrar hliðar leiksins sem hann getur bætt sig mikið í," sagði Coton.