Fyrsta skotmark De Zerbi - Man Utd fylgist með miðverði Benfica - Kofane til Arsenal - Hvað verður um Kounde og Dumfries?
   fim 02. apríl 2026 17:30
Brynjar Ingi Erluson
Liðsfélagarnir ósáttir með Enzo
Enzo Fernandez og Reece James á góðri stundu
Enzo Fernandez og Reece James á góðri stundu
Mynd: EPA
Leikmenn Chelsea eru allt annað en sáttir með daður Enzo Fernandez, fyrirliða liðsins, við Real Madrid síðustu daga, en þetta herma heimildir Telegraph.

Argentínumaðurinn hefur rætt opinskátt um framtíð sína og að hann gæti vel séð fyrir sér að búa annars staðar í Evrópu og þá sérstaklega Madríd.

Eftir að Chelsea datt út úr Meistaradeildinni sagðist hann ekki vita hvernig næsta tímabil mun líta út og að framtíð hans væri algerlega óráðin.

Á síðustu dögum hefur hann þá komið fram í viðtölum þar sem hann nefnir Toni Kroos og Luka Modric, tvo fyrrum leikmenn Real Madrid, sem átrúnaðargoð sín.

Telegraph segir hegðun Enzo ekki falla í kramið hjá liðsfélögum hans í Chelsea sem þurfa á leiðtoga að halda fyrir síðustu tvo mánuði tímabilsins.

Chelsea er í 6. sæti deildarinnar með 48 stig, einu stigi frá Meistaradeildarsæti, þar sem England mun fá fimm Meistaradeildarsæti í ár, en Chelsea er að ganga í gegnum erfiðan kafla og ekki unnið í síðustu fjórum leikjum.

Enzo var keyptur til Chelsea árið 2023 frá Benfica fyrir 106 milljónir punda aðeins nokkrum vikum eftir að hann var valinn besti ungi leikmaðurinn á HM í Katar.
Slapp
banner
banner
banner