Fotbolti.net
02.04.26 - 11:44
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Nýliðarnir reyna að kaupa unglingalandsliðsmann af grönnunum

Nýliðarnir reyna að kaupa unglingalandsliðsmann af grönnunum
Canon

Mynd: Fjölnir

Hertz
Nýliðar Grindavíkur/Njarðvíkur hafa í vetur haft augastað á leikmanni Keflavíkur. Það er Salóme Kristín Róbertsdóttir hjá Keflavík sem er á óskalista nágrannanna.

Samkvæmt heimildum Fótbolta.net hefur Grindavík/Njarðvík reynt að kaupa Salóme í vetur en Keflavík hefur hafnað tilraunum grannanna.

Salóme Kristín er fædd árið 2007, hún er varnarmaður sem á að baki fimm leiki með U19 landsliðinu.
Grindavík/Njarðvík endaði í 2. sæti Lengjudeildarinnar í fyrra og verður því í Bestu deildinni í sumar. Keflavík endaði í 8. sæti Lengjudeildarinnar í fyrra og lék Salóme alla 18 leiki liðsins. Hún var valin besti leikmaður liðsins fyrir frammistöðu sína á síðasta tímabili.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.