Fyrsta skotmark De Zerbi - Man Utd fylgist með miðverði Benfica - Kofane til Arsenal - Hvað verður um Kounde og Dumfries?
   fim 02. apríl 2026 22:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Rodri með samningstilboð á borðinu
Mynd: EPA
Man City hefur boðið spænska miðjumanninum Rodri nýjan samning. Fabrizio Romano greinir frá þessu.

Þessi 29 ára miðjumaður hefur verið orðaður við Real Madrid en spænski miðillinn Marca greindi frá því að Enzo Fernandez, miðjumaður Chelsea, væri ofar á óskalista spænska félagsins.

Rodri á rúmlega ár eftir af samningi sínum og Man City mun byðja um hátt verð fyrir hann næsta sumar ef hann neitar samningstilboðinu.

Rodri gekk til liðs við City frá Atletico Madrid árið 2019. Hann hefur unnið úrvalsdeildina fjórum sinnum, enska bikarinn og deildabikarinn samanlagt fjórum sinnum og Meistaradeildina árið 2023 þegar liðið vann þrennuna. Hann var valinn besti leikmaður heims það ár.
Slapp
banner