Fyrsta skotmark De Zerbi - Man Utd fylgist með miðverði Benfica - Kofane til Arsenal - Hvað verður um Kounde og Dumfries?
   fim 02. apríl 2026 10:48
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Skotmark Liverpool og Man Utd kostar 100 milljónir - City vill svar frá Guardiola
Powerade
Yan Diomande er eftirsóttur.
Yan Diomande er eftirsóttur.
Mynd: EPA
Enzo Maresca hefur verið orðaður við City ef Guardiola yfirgefur félagið í sumar.
Enzo Maresca hefur verið orðaður við City ef Guardiola yfirgefur félagið í sumar.
Mynd: EPA
De Zerbi vill Locatelli.
De Zerbi vill Locatelli.
Mynd: EPA
Everton fylgist með samningsstöðu John Stones hjá Manchester City, fulltrúar Sandro Tonali hafa samband við Real Madrid og Barcelona leiðir kapphlaupið um Bernardo Silva. Þetta og fleira í slúðurpakka dagsins. Það er BBC sem tekur saman það helsta í slúðrinu og samantektin er í boði Powerade.



John Stones (31) fær líklega ekki nýjan samning hjá Manchester City og fyrrum félag hans, Everton, er á meðal þeirra sem fylgjast með þróun mála. (Talksport)

Fulltrúar Sandro Tonali (25) hafa sett sig í samband við Real Madrid. Tonali gæti farið frá Newcastle í sumar og vilja menn kanna landslagið. Manchester City hefur einnig áhuga á Ítalanum. (Teamtalk)

Barcelona leiðir kapphlaupið um undirskrift Bernardo Silva (31) hjá Manchester City en hann verður samningslaus í sumar. (Sun)

Arsenal fylgist með Christian Kofane (19) framherja Leverkusen og Kamerún. Leverkusen er sagt vilja fá allt að 60 milljónir punda fyrir kappann í sumar. (Florian Plettenberg)

26 milljóna punda kaupmöguleiki Barcelona í lánssamningi Marcus Rashford (28) sem er á láni hjá félaginu frá Manchester United rann út í mars. Núna eru félögin í viðræðum um kaupverð. (Cadena SER)

Manchester City, Liverpool og Chelsea fylgjast með stöðu mála hjá Jules Kounde (27) varnarmanni Barcelona. (Mundo Deportivo)

Denzel Dumfries (29) bakvörður Inter hefur verið boðinn til Liverpool, Manchester City, Manchester United, Chelsea, Tottenham og Newcastle. (Teamtalk)

Man Utd hefur áhuga á Samuel Dahl (23) varnarmanni Benfica og hafa njósnarar enska félagsins horft á hann oftar en tíu sinnum í vetur. (Record)

Celta Vigo vill halda Fer Lopez (21) en hann hefur verið hjá félaginu á láni frá Wolves. (Faro de Vigo)

Roberto de Zerbi vill fá Manuel Locatelli (28) miðjumann Juventus til Tottenham í sumar. (Calciomercato)

Man Utd og Liverpool ætla sér að reyna við Yan Diomande (19) vængmann RB Leipzig. Þýska félagið vill fá 100 milljónir evra fyrir kappann. Bayern Munchen, Tottenham og PSG hafa líka sýnt áhuga. (Sportsboom og Sky í Þýskalandi)

Manchester City hefur formlega spurt Pep Guardiola hvort hann ætli sér að klára samning sinn við félagið. (Talksport)
Slapp
banner