Fotbolti.net
02.05.18 - 12:00
Fótbolti.net

Meistaraspáin: Fer Liverpool alla leið?

<b>Meistaraspáin:</b> Fer Liverpool alla leið?
Canon

Mynd: Fótbolti.net

Það ræðst í kvöld hvort að Roma eða Liverpool mæti Real Madrid í úrslitaleik Meistaradeildarinnar þann 26. maí næstkomandi. Liverpool er með 5-2 forskot eftir fyrri leikinn en hvað gerist á Ítalíu klukkan 18:45 í kvöld?
Sigurbjörn Hreiðarsson aðstoðarþjálfari Vals og Tryggvi Guðmundsson markahrókur eru sérfræðingar Fótbolta.net í Meistaradeildinni.

Fótbolti.net kemur með sína spá en keppni er í gangi þar sem 3 stig eru gefin fyrir hárrétt úrslit og 1 stig fyrir rétt tákn. Fótbolti.net leiðir í augnablikinu.


Tryggvi Guðmundsson:

Roma 1 - 2 Liverpool (Samanlagt 3-7)
Vegna þess að enskur samstarfsmaður minn sagði það. Hann er ekki frá Liverpool heldur Torquay

Sigurbjörn Hreiðarsson:

Roma 1 - 2 Liverpool (Samanlagt 3-7)
Rómverjar verða auðvitað að sækja og það hressilega. Hentar Liverpool vel og þeir klára þetta á kraftinum.

Fótbolti.net - Arnar Daði Arnarsson

Roma 2 - 2 Liverpool (Samanlagt 4-7)
Úrslitin í þessu einvígi eru gott sem ráðin. Ef þau eru það ekki nú þegar þá er hægt að henda í (Staðfest) eftir fyrsta mark Liverpool í leiknum. Ætla vera bjartsýnn og spá því að Salah annað hvort skori eða gefur eina stoðsendingu í leiknum. Frekar langsótt en allt getur gerst. En þegar upp er staðið endar leikurinn með jafntefli 2-2.


Staðan í Meistaraspánni:
Fótbolti.net 23
Tryggvi 17
Sigurbjörn 12
Fer Liverpool alla leið í úrslit?

Fer Liverpool alla leið í úrslit?

Canon

Mynd: Getty Images

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.