Fotbolti.net
02.05.18 - 22:36
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Ítalska deildin

Óskar Hrafn: Ótrúlegt að hann skuli hafa það að lifibrauði að spila fótbolta

Kostas Manolas.

Kostas Manolas.

Canon

Mynd: Getty Images

Óskar Hrafn Þorvaldsson var sérfræðingur í Meistaramörkunum í kvöld. Óskar Hrafn liggur ekki á skoðunum sínum og ef menn gera einhverja vitleysu, þá lætur hann vita af því.

Kostas Manolas, varnarmaður Roma, átti ekki alveg sinn besta leik í kvöld gegn Liverpool.

Sjá einnig:
Meistaradeildin: Liverpool gerði nóg í Róm
Hann leit sérstaklega illa út í fyrra marki Liverpool, sem Sadio Mane skoraði. Varnarstaða hans var slök og Óskar Hrafn, sem þjálfar Gróttu, var ekki par sáttur við sinn mann.

„Þetta er ömurlegur varnarleikur og mér finnst það ótrúlegt að þessi maður skuli hafa það að lifibrauði að spila fótbolta. Hann er ótrúlega lélegur,\" sagði Óskar.

„Hann ætti frekar að vera byggja einhver múrsteinahús í Grikklandi eða liggja í sólbaði.\"

„Hann er ekki góður.\"

Smelltu hér til að sjá það sem Óskar Hrafn er að tala um.

Manolas hefur verið hjá Roma frá 2014 en hann hefur verið orðaður við mörg stórliðin í gegnum tíðina.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.