02.05.19 - 17:00
Arnar Daði Arnarsson
Benedikt Daríus í KFG á láni (Staðfest)

Benedikt Daríus.

Mynd: KSÍ

Benedikt Daríus.

Mynd: KSÍ
KFG hefur fengið til sín miðjumanninn unga og efnilega, Benedikt Daríus Garðarsson á láni frá Fylki.
Benedikt lék þrjá leiki í Reykjavíkurmótinu með Fylki í byrjun árs en í fyrra lék hann með Elliða í 4.deildinni.

KFG er nýliði í 2. deildinni eftir að hafa lent í 2. sæti 3. deildarinnar í fyrra og fór því upp um deild ásamt Dalvík/Reyni.
2. deildin hefst um helgina og leikur KFG gegn Víði Garði í 1. umferðinni á útivelli á laugardaginn klukkan 14:00.
Benedikt sem er 20 ára er kominn með leikheimild með KFG og því löglegur í fyrsta leik.