02.05.19 - 10:15
Arnar Daði Arnarsson
Landsliðsmarkvörður Aserbaídsjan í Keflavík (Staðfest)

Mynd: Víkurfréttir

Mynd: Víkurfréttir

Keflavík hefur samið við landsliðsmarkvörð Aserbaídsjan, Aytac Sharifova, fyrir komandi tímabil í Pepsi Max-deild kvenna. Aytac er 22 ára og hefur hún spilað með yngri landsliðum Aserbaídsjan sem markmaður en hefur einnig spilað sem útileikmaður.
Þú getur keypt Aytac Sharifova í þitt Draumalið.
Henni er ætlað að fylla það skarð sem Lauren Watson skyldi eftir sig en hún var valin besti leikmaður Inkasso-deildarinnar í fyrra.
Þú getur keypt Aytac Sharifova í þitt Draumalið.
Henni er ætlað að fylla það skarð sem Lauren Watson skyldi eftir sig en hún var valin besti leikmaður Inkasso-deildarinnar í fyrra.
„Aytac kom til æfinga með Keflavík þegar Keflavíkurstúlkur fóru í æfingaferð til Tyrklands í mars síðastliðnum og má með sanni segja að hún hafi hrifið þjálfara, fylgdarlið og liðsmenn með framgöngu sinni í markinu sem og utan vallar. Það er því mikill fengur fyrir Keflavíkurliðið að hún hafi verið tilbúinn að koma á nýjar slóðir, takast á við nýjar áskoranir og spila fyrir okkur. Áfram Keflavík!" segir í tilkynningu frá Keflavík.
Pepsi Max-deild kvenna hefst í dag þegar Keflvík heimsækir Fylki í nýliðaslag.
Komnar:
Dröfn Einarsdóttir frá Grindavík
Ísabel Jasmín Almarsdóttir frá Grindavík
Katrín Hanna Hauksdóttir frá HK/Víkingi
Aytac Sharifova frá Azerbaijan
Farnar:
Lauren Watson til Bandaríkjanna
Una Margrét Einarsdóttir í Grindavík (á láni)
Ástrós Lind Þórðardóttir í Grindavík (á láni)
Brynja Pálmadóttir í Grindavík (á láni)