Fotbolti.net
02.06.17 - 11:22
Magnús Már Einarsson

Beitir í KR (Staðfest)

Beitir Ólafsson.

Beitir Ólafsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

KR hefur fengið markvörðinn Beiti Ólafsson til liðs við sig. Beitir hefur fengið leikheimild með KR og er klár í leikinn gegn Grindavík á mánudaginn. Hann samdi við KR út tímabilið.

KR óskaði eftir undanþágu til að fá markvörð þrátt fyrir að félagaskiptaglugginn sé lokaður. KSÍ varð við þeirri beiðni Vesturbæinga. Ástæðan fyrir beiðninni eru mikil meiðsli hjá markmönnum KR.

Stefán Logi Magnússon fór í aðgerð í síðustu viku og verður frá keppni í mánuð. Sindri Snær Jensson verður frá í að minnsta kosti 5-6 vikur eftir að hafa tví handarbrotnað gegn ÍR í Borgunarbikarnum í vikunni.

Hinn 19 ára gamli Jakob Eggertsson leysti Sindra af hólmi en hann er eini leikfæri markvörðurinn hjá KR í dag því Oddur Ingi Bjarnason, sem leikur einnig með 2. flokki félagsins, er puttabrotinn.

Beitir æfði með KR í gær og hann og Jakob verða núna báðir í leikmannahópnum gegn Grindavík á mánudag.
Beitir, sem er þrítugur, er uppalinn hjá HK en spilaði síðast með Keflavík í Inkasso-deildinni á síðustu leiktíð. Hann lék 21 leik í deildinni. Hann hætti hjá Keflavík eftir síðasta tímabil og hefur ekki spilað fótbolta síðan þá.

Á ferli sínum hefur Beitir leikið yfir 150 leiki í 1, 2 og 3. deild en hann gæti nú fengið sitt fyrsta tækifæri í Pepsi-deildinni.

Næstu leikir KR:
5. júní KR - Grindavík
14. júní ÍBV - KR
18. júní KR - Breiðablik
24. júní KA - KR
2-3. júlí 8-liða úrslit í bikar
9. júlí KR - Fjölnir
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.