Fotbolti.net
02.06.17 - 10:30
Magnús Már Einarsson

Yaya Toure áfram hjá Manchester City (Staðfest)

Yaya Toure áfram hjá Manchester City (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Yaya Toure, miðjumaður Manchester City, hefur skrifað undir nýjan eins árs samning við félagið.

Hinn 34 ára gamli Toure hefur skorað 81 mark í 299 leikjum með City síðan hann kom til félagsins frá Barcelona árið 2010.

Í byrjun síðasta tímabils var Toure úti í kuldanum hjá Pep Guardiola, stjóra City, en hann var til að mynda ekki valinn í Meistaradeildarhóp félagsins.
Toure kom síðan aftur inn í lið City í nóvember og hann hefur nú verið verðlaunaður með nýjum samningi.

„Ég er ánægður. Ég sagði við sjálfan mig að ferðalaginu hjá City er ekki lokið,\" sagði Toure eftir undirskrift.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.