Fotbolti.net
02.06.18 - 21:57
Fótbolti.net

Einkunnir TG9: Einn þristaður - Rúrik maður leiksins

Rúrik var valinn maður leiksins.

Rúrik var valinn maður leiksins.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Icelandair
Nú er nýlokið vináttulandsleik Íslands og Noregs. Hér að neðan má sjá einkunnagjöf Fótbolta.net eftir leikinn en Tryggvi Guðmundsson sá um að gefa einkunnir.

Leikurinn endaði með 2-3 sigri Noregs.
Frederik Schram 3
Virkaði óöruggur í flestum atriðum. Var gríðarlega mikill skjálfti í honum og menn fyrir framan hann virtust ekki treysta honum. Hannes á þessa stöðu og það sést vel þegar aðrir en hann eru í markinu. Skelfileg mistök í öðru marki Noregs.

Birkir Már Sævarsson 6
Valsarinn var rólegur í fyrri hálfleik en líflegri í seinni.

Kári Árnason 6
Kári er oftast traustur í landsliðstreyjunni en sending hans til baka á Frederik Schram var ekki til fyrirmyndar.

Ragnar Sigurðsson 6
Hef séð Ragga traustari. Hann var ekki nógu nálægt manninum í marki Norðmanna.

Hörður Björgvin Magnússon 6
Fín frammistaða. Stóð fyrir sínu þó hann hafi ekki verið áberandi í sóknarleiknum.

Jóhann Berg Guðmundsson 5
Jói Berg hefur oft verið mun frískari og fyrstu snertingarnar hans voru óvenju slakar.

Birkir Bjarnason 7
Mjög traustur varnarlega í stöðu miðjumanns. Fór minna fyrir honum sóknarlega. Klárt að hann mun taka stöðu Arons ef fyrirliðinn verður ekki klár fyrir HM.

Emil Hallfreðsson 6
Stýrði miðjunni þokkalega.

Rúrik Gíslason 7 - Maður leiksins
Örlítið bras í byrjun en þegar hann fór í gang var hann hörkuöflugur og gerði vel þegar hann náði í víti. Var greinilega ákveðinn í að sýna sig enda í harðri baráttu um stöðu í liðinu.

Alfreð Finnbogason 7
Duglegur og nokkuð öruggur í móttökum. Flottur á punktinum.

Jón Daði Böðvarsson 5
Fór of lítið fyrir Jóni Daða í þessum leik.

Varamenn:

Sverrir Ingi Ingason 5
Þriðja mark Noregs verður að skrifast að einhverju leyti á hann.

Björn Bergmann Sigurðarson 5
Bætti litlu við leikinn.

Ari Freyr Skúlason 6
Átti ágætis spretti.

Gylfi Þór Sigurðsson 7
Mjög góð innkoma og mark, falleg afgreiðsla. Velkominn aftur.
Emil Hallfreðsson og Birkir Bjarnason.

Emil Hallfreðsson og Birkir Bjarnason.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.