02.06.18 - 13:30
Ívan Guðjón Baldursson
Pellegrino tekinn við Leganes (Staðfest)


Mynd: Getty Images


Mynd: Getty Images
Mauricio Pellegrino er snúinn aftur til starfa í knattspyrnuheiminum eftir að hafa verið rekinn frá Southampton í mars.
Hann skrifaði undir eins árs samning við spænska félagið Leganes í dag.
Hann skrifaði undir eins árs samning við spænska félagið Leganes í dag.
Leganes er án stjóra eftir að Asier Garitano tók við Real Sociedad í síðasta mánuði. Liðið rétt bjargaði sér frá falli og komst í undanúrslit spænska bikarsins, eftir að hafa slegið Villarreal og Real Madrid úr leik.
Pellegrino fær nú annað tækifæri til að sanna sig, en gengi hans með Southampton var skelfilegt. Mark Hughes tók við af honum og bjargaði félaginu frá falli.
Pellegrino fær nú annað tækifæri til að sanna sig, en gengi hans með Southampton var skelfilegt. Mark Hughes tók við af honum og bjargaði félaginu frá falli.
