02.06.18 - 15:00
Ívan Guðjón Baldursson
Wolves festir kaup á Willy Boly (Staðfest)


Mynd: Getty Images


Mynd: Getty Images
Úlfarnir unnu Championship deildina með sannfærandi hætti og eru búnir að festa kaup á tveimur lánsmönnum frá nýliðnu tímabili.
Sóknarmaðurinn Benik Afobe var staðfestur í gær en miðvörðurinn Willy Boly kemur einnig til félagsins.
Sóknarmaðurinn Benik Afobe var staðfestur í gær en miðvörðurinn Willy Boly kemur einnig til félagsins.
Boly er 27 ára gamall Frakki og kemur frá Porto. Wolves greiðir 10 milljónir punda fyrir Boly og 12.5 fyrir Afobe, sem kemur frá Bournemouth.
Boly á sex leiki að baki fyrir yngri landslið Frakka. Hann lék við góðan orðstír hjá bæði Auxerre og Braga áður en hann var fenginn til Porto, þar sem hann fékk aðeins að spila fjóra deildarleiki.
Boly á sex leiki að baki fyrir yngri landslið Frakka. Hann lék við góðan orðstír hjá bæði Auxerre og Braga áður en hann var fenginn til Porto, þar sem hann fékk aðeins að spila fjóra deildarleiki.
