Fotbolti.net
02.06.19 - 22:53
Ívan Guðjón Baldursson

Gary Martin fer til ÍBV (Staðfest)

Gary Martin fer til ÍBV (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

ÍBV er búið að tilkynna það að sóknarmaðurinn Gary Martin er genginn í raðir félagsins.
Gary samdi um starfslok við Val í lok maí og varð þannig laus allra mála. Hann mun ekki fá leikheimild með ÍBV fyrr en félagaskiptaglugginn opnar 1. júlí.

Gary hefur skorað 45 mörk í 96 leikjum í efstu deild og gerði hann 2 mörk í 3 deildarleikjum með Val áður en hann var látinn fara.

Hans bestu ár voru 2013 og 2014 þegar hann gerði 26 mörk í 43 leikjum með KR.

Gary er fæddur 1990 og hefur leikið fyrir Lilleström, Lokeren og York City undanfarin ár. Hér á landi hefur hann spilað fyrir ÍA og Víking R. auk Vals og KR.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.