Fyrsta skotmark De Zerbi - Man Utd fylgist með miðverði Benfica - Kofane til Arsenal - Hvað verður um Kounde og Dumfries?
Ian Jeffs: Veit ekki hverjar geta mætt á morgun
Guðni Eiríks: Sagði að ef hann myndi ekki taka ákvörðunina þá myndi ég gera það fyrir hann
Álitið - Hver verður efnilegastur
Álitið - Hverjir verða meistarar og hver verður bestur?
Óskar Hrafn hefur ekki tíma fyrir gæðastjórann
Aron Einar: Það hefur aldrei vantað upp á hjá honum
Arnar vonsvikinn: Rosalega mikill klaufagangur
Gylfi: Jákvætt að þetta gerist ekki í undankeppni
Ísak Bergmann: Langt síðan við höfum farið ósigraðir úr glugga
Jón Dagur: Verður eins og Covid leikur
Ellefu dagar í Bestu - Gæðastjórinn útskýrir xF
Steini: Hún er á mun betri stað en fyrir hálfu ári
Davíð Örvar: Við gefum öllum liðum leik
Maggi: Hann átti frábæran leik í dag
41 árs Birkir Már: Vonandi í síðasta skipti sem ég næ ekki 90 mínútum
Valdimar Þór: Skil dómarann að gefa mér gult
Daniel Badu: Þessi leikur sýndi okkur að við eigum enn eitthvað í land
Sölvi Geir um óvænta innkomu Sveins Margeirs: Þetta er okkar leikmaður og við pössum upp á þá
„Þurfum að læra sem lið að loka þessum leikjum"
Mikael Egill svekktur: Hann hló og sagði ekki séns
banner
   sun 02. júní 2019 18:57
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Jónas Björgvin: Við tókum það með okkur inn á völlinn sem Baldvin kenndi okkur
Jónas fagnaði með Alvaro í leiknum í dag.
Jónas fagnaði með Alvaro í leiknum í dag.
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Þór vann í dag 2-0 heimasigur á Þrótturum í 5. umferð Inkasso deildarinnar. Þór komst yfir eftir um hálftíma leik með marki frá Alvaro Montejo og undir lok leiks bætti Sigurður Marínó Kristjánsson við seinna marki Þórsara.

Þórsarar ógnuðu meira í leiknum en Þróttur átti þó tvær góðar marktilraunir í seinni hálfleik.

Lestu meira um Þór 2-0 Þróttur R. hér.

Jónas Björgvin Sigurbergsson lék á vinstri kantinum hjá Þór í dag, Jónas lék vel í leiknum og var hann í viðtali við Fótbolti.net eftir leikinn í kvöld.

„Virkilega vel sótt þrjú stig og hefðum getað skorað fleiri mörk. Kærkomin þrjú stig eftir tvo tapleiki í röð," sagði Jónas.

„Við fyrst og fremst einbeitum okkur að okkar styrkleikum sem felast í því að spila boltanum hratt meðfram jörðinni. Það gekk ágætlega í dag."

„Þeir fengu föst leikatriði sem hafa reynst okkur erfið en við lokuðum á þau. Aron ver virkilega vel í seinni hálfleiknum, hann er frábær í marki."

„Ég er að spila skemmtilegt hlutverk og er mikið í boltanum. Ég set meiri pressu á sjálfan mig og vil skila betri tölfræði. Það er meiri veikleiki hjá mér í varnarleiknum en ég skilaði því vel frá mér í dag."


Fyrir leik var tilkynnt í hátalarakerfinu að leikmenn Þórs myndu leika með svört sorgarbönd. Baldvin Rúnarsson, einn mesti Þórsari sem undirritaður hefur komist í kynni við, lést á dögunum eftir áralanga baráttu við krabbamein.

Jónas er fæddur sama ár og Baldvin fæddist og spiluðu þeir saman upp yngri flokkana hjá Þór.

„Blessuð sé minning hans. Við spiluðum fyrir hann í dag og gerum það um ókomna tíð. Hann hefði viljað spila þennan leik í dag."

„Við tókum það með inn á völlinn í dag sem hann kenndi okkur með lífinu. Hann gafst aldrei upp. Þetta var ótrúlegur gæi og ég held ég muni aldrei koma til með að kynnast svona eintaki. Fáránlega stoltur að hafa fengið að njóta þeirra stunda með honum á meðan hann var enn með okkur."


Blessuð sé minning Baldvins Rúnarssonar. Ég, undirritaður, votta fjölskyldu og vinum Baldvins mína dýpstu samúð.

Viðtalið í heild sinni má sjá í spilaranum hér að ofan.
Slapp
banner
banner