KA mætir Magna í æfingaleik á Dalvíkurvelli í kvöld enda styttist óðfluga í upphaf Íslandsmótsins.
Íslensk lið hafa verið að keppa æfingaleiki undanfarna daga þar sem Covid-19 hættan virðist vera liðin hjá í bili.
Vængir Júpíters eiga þá leik við Björninn á gervigrasinu við Egilshöllina en það vantar tímasetningu á þann leik. Björninn ætlaði upprunalega að spila við Kríu á Seltjarnarnesi.
Það eru líklega fleiri leikir sem munu fara fram víða um land í dag og óskum við eftir upplýsingum um alla æfingaleiki í gegnum tölvupóst á [email protected].
Leikir dagsins:
20:00 KA - Magni (Dalvíkurvöllur)
Vængir Júpíters - Björninn (Gervigras við Egilshöll)
Athugasemdir