02.07.17 - 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Fyrrum aðstoðarstjóri Leeds tekur við Oxford (Staðfest)

Clotet ræðir hér við Garry Monk. Þeir störfuðu lengi saman.

Mynd: Getty Images

Oxford United hefur ráðið Pep Clotet, fyrrum aðstoðarstjóra Leeds United og Swansea, sem nýjan stjóra sinn.
Clotet, sem er fertugur, vann með Garry Monk hjá bæði Leeds og Swansea, en nú er hann orðinn aðalmaðurinn.

Hann tekur við Oxford af Michael Appleton, sem hætti hjá félaginu til að gerast aðstoðarmaður Leicester City.
„Ég mun leggja hart að mér til að endurgjalda traustið,\" sagði Clotet þegar hann var kynntur til starfa.
Clotet fylgdi ekki Garry Monk til Middlesbrough þar sem hann vildi taka sjálfur við liði og nú er draumurinn orðinn að veruleika.
Oxford leikur í ensku C-deildinni (e. League 1).