Fotbolti.net
02.07.17 - 07:45
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson

Wolves kaupir leikmann frá Konyaspor (Staðfest)

Barry Douglas (til hægri) í leik með Dundee United.

Barry Douglas (til hægri) í leik með Dundee United.

Canon

Mynd: Getty Images

Enska Championship liðið Wolves gekk í gær frá kaupum á skoska bakverðinum Barry Douglas.
Kaupverðið hefur ekki verið gefið upp fyrir þennan 27 ára gamla Skota sem kemur frá tyrkneska liðinu, Konyaspor.

Barry Douglas semur við Wolves til tveggja ára með möguleika á árs framlengingu.

„Ég er ánægður með að vera kominn hingað og ég get ekki beðið eftir að byrja. Ég veit að Wolves er stór klúbbur og þetta er því spennandi áskorun fyrir mig,\" sagði Douglas eftir undirskriftina.

Hjá Wolves hittir Douglas íslenska landsliðsmanninn Jón Daða Böðvarsson.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.