02.07.18 - 15:10
Ívan Guðjón Baldursson
Adam Masina til Watford (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Watford er búið að staðfesta komu Adam Masina til félagsins. Masina er snöggur vinstri bakvörður.
Masina fæddist í Marokkó en er uppalinn á Ítalíu og hefur leikið fyrir Bologna alla tíð.
Bakvörðurinn er 24 ára gamall og á 124 leiki að baki í Serie A auk 6 landsleikja með U21 liði Ítalíu.
Tottenham hafði einnig áhuga á Masina en ekkert varð úr þeim félagaskiptum.
Masina mun berjast við Jose Holebas um byrjunarliðssæti.