02.07.18 - 17:23
Ívan Guðjón Baldursson
Asamoah og de Vrij til Inter (Staðfest)

Lazio mætti Inter í síðustu umferð ítalska tímabilsins í hreinum úrslitaleik um Meistaradeildarsæti. De Vrij var þegar búinn að ná samkomulagi við Inter og fékk dæmda vítaspyrnu á sig í leiknum. Hann var í molum eftir leikinn en fær meistaradeildarfótbolta í sárabætur.

Mynd: Getty Images

Kwadwo Asamoah og Stefan de Vrij eru komnir til Inter á frjálsri sölu. Asamoah kemur frá Juventus og de Vrij frá Lazio.
Asamoah er fjölhæfur vinstri bakvörður sem getur einnig leikið á vinstri kanti og miðjunni. Hann er 29 ára og hefur verið hjá Juve síðustu sex ár.
De Vrij er 26 ára og var eftirsóttur af stórliðum á borð við Manchester United og Juventus eftir frábært tímabil með Lazio.
De Vrij er fastamaður í hollenska landsliðinu og á 36 A-landsleiki að baki auk 43 leikja fyrir yngri liðin.
Þetta eru frábær tíðindi fyrir Inter, sem gekk frá kaupunum á Radja Nainggolan fyrir nokkrum dögum. Matteo Politano gekk þá einnig til liðs við félagið á dögunum.