Fotbolti.net
02.07.18 - 13:46
Elvar Geir Magnússon

Klopp tók á móti Keita með innilegu faðmlagi

Keita fær faðmlag.

Keita fær faðmlag.

Canon

Mynd: Liverpool

Undirbúningstímabilið er farið af stað hjá Liverpool og mátti sjá nokkur ný andlit á fyrstu æfingunni.

Brasilíski miðjumaðurinn Fabinho var keyptur frá Mónakó en þau kaup komu eins og þruma úr heiðskíru lofti. Þá er Naby Keita loksins mættur á Melwood æfingasvæðið, ári eftir að gengið var frá kaupum á honum frá RB Leipzig.

Jurgen Klopp og hans menn ætla að gera enn betur en á síðasta tímabili þegar Liverpool endaði í fjórða sæti og tapaði úrslitaleik Meistaradeildarinnar.

Sjónvarpsstöð Liverpool, LFC TV, hefur verið að fylgja Keita eftir þegar hann er að skoða nýjar aðstæður. Í myndskeiði frá stöðinni sést Klopp mæta honum í stiga. Klopp er með sitt fræga bros og gefur Keita innilegt faðmlag.

Klopp heyrist segja við Keita á frönsku \'ca va?\' eða \'hvað er að frétta?\'. Keita brosir breitt.

Keita mun líklega spila sinn fyrsta leik í búningi Liverpool á laugardaginn í æfingaleik gegn Chester City.

BIG Klopp hug for our new No.8! 🙌🙌#LFCPreSeason https://t.co/jzzSPRWv10 pic.twitter.com/CqA2nACwqV

— Liverpool FC (@LFC) July 2, 2018


Sjá einnig:
Klopp reynir að rýna í andlegt ástand Karius
Salah framlengir við Liverpool (Staðfest)
Klopp tók á móti Keita með innilegu faðmlagi
Canon

Mynd: Getty Images

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.